Beint í efni
Mínar síður

SÆKJA UM STYRK | HJÁLPARHELLA BM VALLÁR


GÓÐ VERKEFNI ÞURFA STUNDUM HJÁLPARHELLU

Hjálparhella, samfélagssjóður BM Vallár

Ert þú með verkefni sem lætur gott af sér leiða?

Hjálparhella er samfélagssjóður BM Vallár sem styður verkefni sem hafa jákvæð áhrif á samfélagið. Markmið sjóðsins er að styðja við fjölbreytt verkefni á sviði íþrótta- og æskulýðsstarfa, góðgerðarmála, umhverfismála, sjálfbærni og nýsköpunar. Að auki er horft til verkefna sem samræmast stefnu fyrirtækisins, gildum og þeim heimsmarkmiðum sem hafa verið sett í forgang og lögð sérstök áhersla á:

5: Jafnrétti kynjanna
9: Nýsköpun og uppbygging
11: Sjálfbærar borgir og samfélög
12: Ábyrg neysla og framleiðsla
13: Aðgerðir í loftslagsmálum

Styrkir eru veittir til skilgreindra verkefna og viðburða sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni. Að jafnaði eru ekki veittir styrkir í almennan rekstrar- eða launakostnað.

Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember 2026.
Úthlutað verður úr sjóðnum í desember.

Vinsamlegast fylltu út umsóknina hér fyrir neðan og gefðu okkur góða mynd af verkefninu, markmiðum þess og þeim áhrifum sem það getur haft.